Síðasta ferð yfir Breiðamerkurjökul
Þorbjörg Arnórsdóttir 2. desember 2006:
Í viðtölum við erlenda ferðamenn sem heimsóttu Þórbergssetur í sumar gætti gjarnan undrunar hjá þeim hversu einangrað þetta landsvæði hefur verið. Það eru aðeins rúmlega 40 ár síðan að jökulfljót lokuðu Suðursveit af frá umheiminum á báða vegu, úti fyrir er hafnlaus strönd þar sem brimið svarrar og að baki risavaxnir fjallgarðar og víðáttumiklar jökulbreiður. Það eru reyndar þessi einkenni í náttúrufari Skaftafellssýslna sem nú virka eins og segull og draga að hundruð þúsundir ferðamanna ár hvert.