Ólafsmessutónleikar
Hinir árlegu Ólafsmessutónleikar verða í Kálfafellsstaðarkirkju sunnudagskvöldið 29. júlí næstkomandi.
Ólafur helgi Noregskonungur féll í bardaga á Stiklastöðum í Noregi 29. júlí 1030 og er Ólafsmessa á sumri helguð þessum atburði. Samverustundin er helguð gömlum sögnum tengdum Ólafi en hann var verndardýrlingur kirkjunnar á Kálfafellsstað. Að lokinni helgistund verður rifjuð upp gömul þjóðsaga um völvuna á Kálfafellsstað sem var systir Ólafs helga og lesin saga um líkneski af honum sem gefið var til kirkjunnar upp úr aldamótunum 1700 til að hnekkja álögum völvunnar á staðnum. Líkneski þetta er varðveitt í Þjóðminjasafninu.
Lesin er frásaga Kristjáns Eldjárns af líkneskinu, að lestri loknum hefjast tónleikarnir og standa í um klukkustund. Á eftir er farið í heimsókn að Völvuleiðinu við Hellakletta og Fjölnir Torfason á Hala segir frá gömlum sögum er tengjast staðnum. Einnig sýnir hann áþreifanlega muni frá Kálfafellsstað sem varðveist hafa og sanna mátt völvunnar og áhrif hennar á lífið í Suðursveit allt fram á okkar daga.
Dagskráin er eftirfarandi:
- Helgistund: Séra Gunnar Stígur Reynisson
- Upplestur: Völvan á Kálfafellsstað; Þorbjörg Arnórsdóttir
- Tónleikar: Svavar Knútur tónlistarmaður
- Gönguferð að Völvuleiði: Fjölnir Torfason segir frá
Allir velkomnir