Höfðingleg gjöf
Á síðast liðnum vetri hringdi Ragnar Imsland þúsundþjalasmiður á Höfn í Hornafirði í forstöðumann Þórbergsseturs og kvaðst vera með svolítinn hlut sem hann langaði til að færa setrinu að gjöf. Þetta var þá ræðupúlt, smíðað af honum sjálfum, mikil listasmíð, þar sem hann notaði stafagerð Þórbergs til að skrifa og skera út svo fallega nafn setursins á framhlið. Að baki liggja án efa ótal vinnustundir og er gripurinn hannaður af listamanninum þar sem hann nýtir greinilega smekkvísi og hæfileika sína í þetta einstaka listaverk. Aðstandendur Þórbergssetur þakka af alhug þessa höfðinglegu gjöf og þann góða hug sem liggur að baki. Gefendur eru hjónin Ragnar Imsland og Júlía Imsland, ræðupúltið kom í góðar þarfir og er nú skartað með því á öllum samkomum Þórbergsseturs