Skip to main content

Nýtt efni á Þórbergur.is

Pétur Gunnarsson rithöfundur hefur látið ritnefnd vefjarins í té tvær greinar þar sem hann fjallar um Þórberg Þórðarson. Önnur birtist nýverið í Lesbók Morgunblaðsins og ber yfirskriftina Halldór og Þórbergur. Hina greinina nefnir Pétur Í Suðursveit. Meira efni frá Pétri bíður birtingar hér á vefnum. Einnig er ritaskrá Þórbergs Þórðarsonar væntanleg á vefinn. Vefurinn thorbergur.is hefur hlotið frábærar viðtökur og hefur á annaðhundrað manns skráð sig á póstlistann. Þeim verður gert viðvart um nýtt efni á vefnum í tölvupósti.
 

Hönnuðir

Arkitekt og hönnuður byggingar eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson. Hönnuður sýningar er Jón Þórisson. Textahöfundur sýningar er Jón Hjartarson leikari.

Upplýsingar

Í anddyri Þórbergsseturs er upplýsingamiðstöð þar sem starfsmenn Þórbergsseturs fræða gesti um starfsemi setursins, Þórberg Þórðarson og sögu Suðursveitar. 

Gestakomur


Gestir í dag: ... 0
Gestir þennan mánuð: ... 1225
Gestir á þessu ári: ... 26227