Sunnudagskaffi og bókakynning í Þórbergssetri
Skemmtileg heimsókn
Einn sólardag í sumar komu hjónin Þorvaldur Gylfason og Anna Karitas Bjarnadóttir færandi hendi í Þórbergssetur. Var mikill asi á þeim, en þau sögðust hafa í farteskinu mynd sem tengdamóðir Önnu gaf henni. Tengdamóðir hennar var Guðrún Vilmundardóttir, dóttir Vilmundar Jónssonar landlæknis sem bjó lengi á Ísafirði eða allt til ársins 1931.. Hann var Skaftfellingur í móðurætt og mikill vinur Þórbergs Þórðarsonar. Þórbergur heimsótti hann oft og dvaldi langdvölum hjá fjölskyldu hans vestur á Ísafirði. Myndin hefur verið tekin á einhverjum af ferðalögum þeirra fyrir vestan og þá sennilega fyrir 1930, en ekki er vitað nákvæmlega um tildrög þeirrar ferðar. Myndin hefur án efa verið afskaplega nýstárleg á þeim tíma, þrír flottir stælgæjar saman á ferðalagi á nýmóðins fararskjóta. Þórbergur er lengst til vinstri á myndinni, Vilmundur í miðjunni en ekki er vitað hver þessi einkennisklæddi bílstjóri er. Myndin verður innrömmuð og sett inn á sýninguna í Þórbergssetri við fyrsta tækifæri. Þórbergssetur þakkar þeim hjónum gjöfina og þann góða hug sem henni fylgir og hressilega heimsókn í Þórbergssetur sumarið 2022.
Eymundur og Halldóra - kynning á rannsóknarverkefni
Bridgemót í Þórbergssetri
Fjölmennt Bridgemót var haldið í Þórbergssetri helgina 30.apríl - 1. maí. Það var mikil kátína og gleði að hittast aftur eftir tveggja ára covid hlé en spilaður var tvímenningur á 16 borðum alls. Margir nýir spilarar mættu og höfðu á orði að þeir myndu koma aftur að ári. Mótið hófst reyndar á föstudagskvöldið, þá var svokallað bjórmót, upphitun fyrir aðal spilamennskuna. Tvímenningskeppnin hófst svo kl 2 á laugardeginum og spilað var linnulaust fram eftir kvöldi. Tekið var þó hlé og etið spikfeitt hrossakjöt með öllu tilheyrandi við mikla ánægju veislugesta. Alltaf er besta kjötið í hverri hrossakjötsveislunni eftir aðra en þetta mun hafa verið 14. mótið sem haldið hefur verið. Síðan var spilað á sunnudeginum frá kl 10 - 15 en þá lágu úrslitin fyrir. Vinningshafar voru Eðvarð Hallgrímsson og Bjarni Guðmundsson og náðu þeir 57,3 % nýtingu í keppninni. Í öðru sæti voru Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson og í þriðja sæti Jón Halldór Guðmundsson og Einar H.Guðmundsson.Meðfylgjandi eru öll úrslit frá mótinu. Bridgemótið er haldið í minningu Torfa Steinþórssonar á Hala (1915 - 2001) . Uppáhaldsmatur hans var saltað og feitt hrossakjöt. Torfi var mikill veiðimaður og veiddi silung í Breiðabólsstaðarlóni öll sumur fram yfir áttrætt. Það átti því líka vel við að hafa stórt bleikjuhlaðborð í hádeginu á hátíðisdaginn 1. maí og fóru því vonandi allir saddir og sælir heim eftir að njóta samveru í einstakri veðurblíðu í sveit sólar, - Suðursveit.
Gaman saman í Þórbergssetri
Bókmenntahátíð Þórbergsseturs sem verður haldin í Þórbergssetri sunnudaginn 27. mars kl 13:30
Gestir á hátíðinni eru Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur sem rifjar upp minningar úr barnæsku frá kynnum sínum af Þórbergi Þórðarsyni og skreytir þær með skáldlegu ívafi eins og honum er einum lagið. Með honum í för eru félagar hans frá hinum fornu Spöðum, - Aðalgeir Arason og Eyjólfur Guðmundsson og ætla þeir að skemmta okkur með söng og sprelli. Aðalgeir Arason er fæddur í Suðurhúsum í Borgarhöfn, en einnig ættaður frá Fagurhólsmýri í Öræfum og er því Skaftfellingur í húð og hár.
Einnig kemur í heimsókn Sólveig Pálsdóttir rithöfundur og barnabarn Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Hún kynnir bók sína Klettaborgina sem segir frá dvöl hennar í Hraunkoti í Lóni á sjöunda áratug síðustu aldar, en hún kom þar fyrst fimm ára gömul og dvaldi öll sumur til 12 ára aldurs. Í bókinni eru einstakar lýsingar horfins sveitasamfélags í Skaftafellssýslu sem hún ,,spinnur einkar fallega, í vel meitluðum glettnum og viðfelldnum texta " Einstakar og næmar mannlýsingar eru aðalsmerki þessarar bókar og auðvelt er að sjá fyrir sér
heimilisfólkið í Hraunkoti og fleiri Skaftfellinga birtast ljóslifandi í hugskotinu við lestur bókarinnar.
Samstarf Skriðuklausturs og Þórbergsseturs - Málþing um menningararfinn á Skriðuklaustri
Á Skriðuklaustri er hefð fyrir að hafa dagskrá á konudaginn sem að þessu sinni var sunnudagurinn 20. febrúar. Þórbergssetri var boðið að kynna þar verkefnið um búsetuminjar í Suðursveit. Vegna covid tókst ekki að mæta á staðinn en tæknin var notuð og erindið flutt i fjarfundi með beinu streymi. Tókst þetta með ágætum þó að væri hálf einmanalegt fyrir fyrirlesara að rýna í skjáinn í stofunni heima á Hala þá tókst að koma efninu vel til skila.