Bókmenntahátíð Þórbergsseturs sem verður haldin í Þórbergssetri sunnudaginn 27. mars kl 13:30
![Guðmundur Andri Thorsson](/images/frettamyndir/2022/Gu%C3%B0mundur-Andri-Thorsson.png)
![solveig p](/images/frettamyndir/2022/solveig_p.jpg)
heimilisfólkið í Hraunkoti og fleiri Skaftfellinga birtast ljóslifandi í hugskotinu við lestur bókarinnar.
Á Skriðuklaustri er hefð fyrir að hafa dagskrá á konudaginn sem að þessu sinni var sunnudagurinn 20. febrúar. Þórbergssetri var boðið að kynna þar verkefnið um búsetuminjar í Suðursveit. Vegna covid tókst ekki að mæta á staðinn en tæknin var notuð og erindið flutt i fjarfundi með beinu streymi. Tókst þetta með ágætum þó að væri hálf einmanalegt fyrir fyrirlesara að rýna í skjáinn í stofunni heima á Hala þá tókst að koma efninu vel til skila.
Starfsemi Þórbergsseturs var um margt óvenjuleg árið 2021. Þar gætti áhrifa frá heimsfaraldinum Covid 19 enda Þórbergssetur aðeins opið í um sjö mánuði á árinu. Segja má að starfið hafi tekið mið af aðstæðum og þróast yfir í að sinna æ meira fræðastarfsemi, rannsóknum og miðlun menningararfs í stað móttöku ferðamanna.
Árið 2021 var góðviðrasamt, gjarnan hægviðri framan af vetri og gott veður til útiveru. Því var auðvelt að halda áfram með skráningarverkefni um fornar rústir og búsetuminjar og vinnutími forstöðumanns fyrstu mánuði ársins var alfarið helgaður því verkefni. Verkefnið er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Þórbergsseturs og er Sigríður Guðný Björgvinsdóttir landfræðingur og fornleifafræðinemi sá starfsmaður Menningarmiðstöðvarinnar er vinnur að verkefninu með aðilum frá Þórbergssetri.
Gísli Sverrir Árnason
Fyrsti áratugur tuttugustu aldar einkenndist af félagslegri vakningu og margvíslegum framförum í Nesjum. Tvö félög voru stofnuð árið 1907, Málfundafélag Hornfirðinga og Ungmennafélagið Máni. Stóðu þau bæði fyrir öflugu félasstarfi og gáfu einnig út sitthvort sveitarblaðið sem gekk handskrifað bæ frá bæ um sveitina og á Höfn. Málfundafélagið stóð að blaðinu Baldri en Máni að Vísi. Sumarið 1907 var svo Fundarhús Nesjamanna byggt um miðbik sveitarinnar og var það vígt 29. september 1907. Húsið varð strax vettvangur félagsstarfs og samkomuhalds í sveitinni.
Nú var stutt í tvær mestu framkvæmdir í Nesjum til þessa; byggingu Laxárbrúar 1910 og nýja Bjarnaneskirkju við Laxá 1911. Bæði þessi mannvirki ullu straumhvörfum fyrir íbúa héraðsins og nýttust vel þann tíma sem þau stóðu en entust þó ekki jafn vel og til var ætlast í upphafi. Hér á eftir verður sagt svolítið frá vinnu við brúargerðina við Laxá árið 1910.