Skip to main content

Annasamt sumar

endurb.1Þetta sumarið hefur verið annasamt hér að Hala, öllum ferðamönnum sem hingað streyma frá víðri veröld þarf að sinna auk hefðbundinna bústarfa enda er hér fjölmennur hópur af góðu starfsfólki og allt gengur án vandræða. Nú í vor bættust tveir starfsmenn í hópinn, þeir Jón Egill Bergþórsson kvikmyndagerðarmaður og Stefán Ágústsson íslenskufræðingur, sem hafa getað sinnt safninu og þeim verkefnum því tengdu sem brýnt var að yrði sinnt.

 

 

 

endurb2Jóhannes Þór Guðbjartsson smiður kom hér í júni og réðst, með Stefán sér til aðstoðar, í lagfæringar á þakinu en það var byrjað að leka, auk þess að dytta að ýmsu inni á sjálfu safninu.

 

 

 

 

endurb.3 Alfreð Sturla Böðvarsson ljósameistari hefur hannað nýja lýsingu í safnið og kom í júni til að setja hana upp. Skipt var um allan ljósabúnað og bætt við mörgum ljósum. Var þetta ærin vinna sem Alfreð stýrði með dyggri aðstoð Vésteins Fjölnissonar og óhætt er að segja að vel hafi tekist til. Þessi breyting setur verulega flottan svip á safnið enda eru gestir undantekningarlaust ánægðir að heimsókn lokinni.

 

 

 

 

endurb.4Auk þessara verkefna hafa starfsmenn safnsins unnið að ýmsum betrumbótum á safninu. Jón Egill hefur t.d. haft veg og vanda að uppsetningu á Ofvitanum, stuttar tilvitnanir í verk Þórbergs hefur verið komið fyrir á norðurhlið fjóssins og bóksafnið hefur verið endurskoðað svo eitthvað sé nefnt.

 

Hönnuðir

Arkitekt og hönnuður byggingar eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson. Hönnuður sýningar er Jón Þórisson. Textahöfundur sýningar er Jón Hjartarson leikari.

Upplýsingar

Í anddyri Þórbergsseturs er upplýsingamiðstöð þar sem starfsmenn Þórbergsseturs fræða gesti um starfsemi setursins, Þórberg Þórðarson og sögu Suðursveitar. 

Gestakomur


Gestir í dag: ... 27
Gestir þennan mánuð: ... 8899
Gestir á þessu ári: ... 16939