Skip to main content

Tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju

olafsmessa2017

Hinir árlegu Ólafsmessutónleikar verða  í Kálfafellsstaðarkirkju laugardagskvöldið 29. júlí næstkomandi. 

Samverustundin er tengd gömlum sögnum tengdum Ólafi helga Noregskonungi en hann var verndardýrlingur kirkjunnar á Kálfafellsstað. Hann féll í bardaga á Stiklastöðum í Noregi 29. júlí 1030 og er  Ólafsmessa á sumri helguð þessum atburði.


Rifjuð verður upp gömul þjóðsaga um völvuna á Kálfafellsstað sem var systir Ólafs helga og lesin saga um líkneski af Ólafi helga sem gefið var til kirkjunnar upp úr aldamótunum 1700 til að hnekkja álögum völvunnar á staðnum.  Líkneskið er varðveitt í Þjóðminjasafninu.

Lesin er frásaga Kristjáns Eldjárns af líkneskinu, síðan hefjast tónleikarnir og standa í um klukkustund. Á eftir er farið í heimsókn að Völvuleiðinu við Hellakletta og Fjölnir Torfason á Hala segir frá gömlum sögum er tengjast staðnum Einnig sýnir hann áþreifanlega muni frá Kálfafellsstað sem varðveist hafa og sanna mátt völvunnar og áhrif hennar á lífið í Suðursveit allt fram á okkar daga

Dagskráin er eftirfarandi:

  • Helgistund: Séra Gunnar Stígur Reynisson
  • Upplestur: Völvan á Kálfafellsstað; Þorbjörg Arnórsdóttir
  • Tónleikar: Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir sagnakona
  • Gönguferð að Völvuleiði: Fjölnir Torfason segir frá

Allir velkomnir

Hönnuðir

Arkitekt og hönnuður byggingar eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson. Hönnuður sýningar er Jón Þórisson. Textahöfundur sýningar er Jón Hjartarson leikari.

Upplýsingar

Í anddyri Þórbergsseturs er upplýsingamiðstöð þar sem starfsmenn Þórbergsseturs fræða gesti um starfsemi setursins, Þórberg Þórðarson og sögu Suðursveitar. 

Gestakomur


Gestir í dag: ... 93
Gestir þennan mánuð: ... 4613
Gestir á þessu ári: ... 22636