Skip to main content

Málþing í Þórbergssetri

Málþing á vegum Þórbergsseturs, Háskólseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum verður haldið í Þórbergssetri dagana 22. – 23. október næstkomandi. Markmið með málþinginu er að vekja athygli á því hvernig hægt er að gera bókmenntaarfinn og nútímabókmenntir að aflvaka nýrra tækifæra í ferðaþjónustu á Íslandi. Á þinginu fer fram samræða á milli forystumanna í samtökum ferðaþjónustu, rekstraraðila í ferðaþjónustu, menningarfræðinga, rithöfunda og bókmenntafræðinga. Vonir standa til að hægt verði að segja fréttir af bókamessunni í Frankfurt sem þá er nýlokið. Málþing í Þórbergssetri eru árlegur viðburður. Þar er ævinlega reynt að blanda saman skemmtun, fróðleik, útiveru og notalegri samveru. Svo verður einnig nú og fyrirlesara lofa skemmtilegri dagskrá þar sem  persónur sagnanna  birtast ljóslifandi og náttúruskoðun fær á sig skáldsagnakenndan blæ.


Dagskrá

Laugardaginn 22. október.
15:00 Málþingið sett
15:15 Ávarp;  Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
15:30 Bókmenntir á aðventu: Skúli Björn Gunnarsson Gunnarsstofnun
16:00 Orðsins list: Saga og sögur Guðrún Helgadóttir Háskólanum á Hólum16:30 Umræður, 17:00 Erindi 17:30 Skoðunarferð um Þórbergssetur
19:00 Kvöldverður
20:30 Kvöldstund í Þórbergssetri    

Sunnudaginn 23. október
9:00    Morgunhressing og morgunganga meðal steinanna, sem tala.
10:15 Á slóðum Guðríðar og Hallgríms: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur
10:45 Veruleiki skáldskaparins Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur Háskólasetur Hornafjarðar
11:15 Fræðandi ferðalög, upplifun, skilningur eða skemmtun; Þorvarður Árnason Háskólasetur   11:45 Að búa í heimi skáldævisögunnar; Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetur
12:10 Umræður
12:40 Hádegisverður og málþingslok

Málþingsgjald er  kr 7000, innifalið kaffi, kvöldverður og hádegisverður
Bókanir á netfangið  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.


ALLIR VELKOMNIR

Hönnuðir

Arkitekt og hönnuður byggingar eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson. Hönnuður sýningar er Jón Þórisson. Textahöfundur sýningar er Jón Hjartarson leikari.

Upplýsingar

Í anddyri Þórbergsseturs er upplýsingamiðstöð þar sem starfsmenn Þórbergsseturs fræða gesti um starfsemi setursins, Þórberg Þórðarson og sögu Suðursveitar. 

Gestakomur


Gestir í dag: ... 65
Gestir þennan mánuð: ... 5178
Gestir á þessu ári: ... 23201