Söguslóð á Suðausturlandi
Söguslóð á Suðausturlandi verður opnuð formlega helgina 6. og 7. júní næstkomandi. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið í samvinnu fjölmargra aðila á svæðinu frá Djúpavogi að Skaftafelli.
Ferðafólki gefst nú kostur á að ferðast eftir merktri söguslóð allt frá Berufirði og út á Skeiðarársand. Einnig verða settar upp tvær nýjar sögusýningar í Löngubúð og á Þórbergssetri sem fjalla um mannaferðir og fyrstu búsetu manna á svæðinu, papa, landnámið og tengingar íbúa Suðausturlands við höfðingjaættir á Norðurlöndum á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Dagskrá verður á Djúpavogi 6. júní þar sem Marteinn H Sigurðsson norrænufræðingur fjallar um Papa og Papaörnefni í Vestur Evrópu og Þorvaldur Friðriksson fréttamaður um keltnesk áhrif á Íslandi. Siglt verður út í Papey og söguslóðir þar kannaðar. Daginn eftir 7. júní verður sama dagskrá flutt í Þórbergssetri og farið í ferðalag í Papbýli í Steinadal að skoða þar ævafornar fornleifar sem fundust fyrir nokkrum árum og sanna búsetu þar fyrir árið 1000.
Eftir opnunarhátíðina verður hægt að koma við á öllum helstu söfnum og gestastofum á svæðinu og nálgast bækling um söguslóðina.. Síðan er bara að leggja af stað, njóta fræðslu á hverjum stað, ýmist af fræðsluskiltum eða starfsfólki á söfnum , sýningum og í gestastofum.
Allir eru velkomnir á opnunarhátíð í Löngubúð og Þórbergssetri, en panta þarf sérstaklega í ferðina í Papey kl 14:00 laugardaginn 6. júní.
Söguhelgi á Suðausturlandi – Opnunarhátíð Söguslóðar á Suðausturlandi
DagskráOpnun söguslóðar í Löngubúð og formleg opnun verkefnisins Söguslóðar á SuðausturlandiLaugardagur 6. júní11:00 Opnun söguslóðar í Löngubúð11:30 Heimamaður ávarpar samkomuna 11:50 Papar fyrir vestan haf og sögulegur bakgrunnur þeirra: Marteinn H Sigurðsson 12:20 Léttar veitingar, súpa og brauð12:50 Keltnesk orð og örnefni, Þorvaldur Friðriksson fréttamaður13:20 Sýningar skoðaðar 14:00 Ferð til Papeyjar Opnun söguslóðar í Þórbergssetri og formleg opnun verkefnisins Söguslóð á SuðausturlandiSunnudagur 7. júní11:00 Opnun söguslóðar í Þórbergssetri11:30 Heimamaður ávarpar samkomuna 11:50 Papar fyrir vestan haf og sögulegur bakgrunnur þeirra: Marteinn H Sigurðsson12:20 Léttar veitingar, kjötsúpa og brauð12:50 Keltnesk áhrif á Íslandi, Þorvaldur Friðriksson13:20 Sýningar skoðaðar14:00 Ferð í Papbýli ALLIR VELKOMNIR