Þórbergur Þórðarson rithöfundur var fæddur á Hala 12. mars árið 1888. Bróðir hans Steinþór Þórðarson bóndi á Hala var fæddur 10. júní 1892. Benedikt Þórðarson bóndi á Kálfafelli í Suðursveit var yngstur þeirra bræðra, fæddur 20. júlí 1894.

Foreldrar þeirra hétu Anna Benediktsdóttir og Þórður Steinsson. Þau giftu sig á vordögum árið 1886 og hófu síðan búskap að Hala það sama ár í sambýli við Benedikt Þorleifsson og Guðnýju Einarsdóttur, foreldra Önnu. Sama ættin hefur búið að Hala samfellt síðan Benedikt og Guðný fluttu frá Hestgerði í Suðursveit að Hala árið 1871.

,,Mér þótti vænna um móður mína en föður minn, og kannski er svo um flesta unglinga. Að einhverju leyti var það af því, að mér fannst hún skilja betur ofvitaskap minn. Þó geri ég honum þar máski rangt til. Hann skildi fleira en hann játaði. Hann átti það til að tala þvert um hug sér. Að láta í ljós viðurkenningu á uppátækjum mínum fór í bága við kenninguna um gagnlega vinnu; að rorra yfir teikningum, landabréfagerð og peningasláttu og eyða tíma í fávitalegar mælingar og skipasmíðar, - það var ekki vinna, heldur ómagaskapur og helvítis lánleysingjaathæfi."
( Þórbergur Þórðarson ; Í Suðursveit bls. 439: Mál og menning 1975)


Nánari upplýsingar

Við bjóðum þér í söguferð með Þórbergi eða landkynningarferð, eins og hann kallaði þær. Söguferðin hefst við minnisvarðann ofan við Hala. Um er að ræða gönguferð eða ratleik fyrir alla fjölskylduna, þar sem söguskilti varða leiðina. Vísbendingar eru neðst á hverju skilti hvert næst skal halda. Einnig er á hverju skilti bókstafur og þegar þeim hefur verið raðað saman í lok ferðar kemur í ljós örnefni í grenndinni.

Gönguferðin tekur um eina klukkustund. Á leiðinni er hægt að fræðast um örnefni og þjóðsögur, en jafnframt að njóta þeirrar einstöku frásagnar- og ritsnilldar er einkennir bókmenntaverk Þórbergs Þórðarsonar. Ferðina er hægt að fara án leiðsagnar.
Nánari upplýsingar eru í síma 478-1073 eða 893-2960.

Góða skemmtun