Sunndagurinn 19. maí 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Sýning með frumútgáfum af verkum Þórbergs Þórðarsonar opnuð í Þórbergssetri
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
þriðjudagur, 27 mars 2012

img_3699

Fyrir nokkru var til sölu safn af frumútgáfum af verkum Þórbergs Þórðarsonar, alls 46 bækur, allar mjög heillegar og vel með farnar. Skinney Þinganes keypti safnið og færði það Þórbergssetri að gjöf  á dagskrá sem haldin var þar sunnudaginn 25. mars . Safnið hefur verið sett upp í skápa í sýningarsal Þórbergsseturs ásamt þeim bókum sem til voru fyrir á Hala. Í þessu safni er m.a. frumútgáfa af Bréfi til Láru sem aðeins kom út í 300 eintökum árið 1924 og er mjög fágæt. Í fyrstu útgáfu af Bréfi til Láru voru bækurnar allar númeraðar og áritaðar af Þórbergi, sérkennileg hönnun vekur athygli en bækurnar eru eins og umslög í laginu og ritað er utan á þær eins og þær séu tilbúnar til sendingar með póstinum. Eintakið í Þórbergssetri er númer 109. Innihald Bréfsins olli sem....

kunnugt er miklu umróti og deilum í samfélaginu. Þórbergur gaf Bréf til Láru út sjálfur og veðsetti eigur sínar fyrir útgáfunni, en bókin seldist strax upp og var aftur gefin út árið 1925 í stærra upplagi. Þorbjörg Arnórsdóttir þakkaði Skinney Þinganes fyrir þessa verðmætu gjöf og bauð síðan gestum að líta hana augum í sýningarsal Þórbergsseturs
Það lögðu margir leið sína í Þórbergssetur þennan dag, eða 80 – 90 manns . Karlakórinn Jökull hóf dagskrána með kórsöng þar sem meðal annars voru sungin lög við texta eftir Þórberg og Megas og endað á frægu Eurovison lagi. Sigurður Pálsson skáld og rithöfundur fór á kostum þegar hann las úr Bernskubók sinni og fór yfir tilurð hennar. Var honum afar vel fagnað og hann klappaður upp aftur til að fá meira að heyra. Soffía Auður fjallaði um Lækningabók Jónassen og Þórberg og kom þar enn einu sinni fram hversu mikið ólíkindatól Þórbergur var og hvernig hann var alltaf með skrifum sínum í raun að setja raunveruleikann í skáldlegan búning .
Einnig er komin upp sýning á styttunum hans Sobeggi afa sem Lilla Hegga gaf honum alltaf á afmælinu hans og á afmælinu hans Jesús þ.e. á jólunum, alls 43 styttur, gjöf frá Helgu Jónu Ásbjarnardóttur til Þórbergssetur.
Það er því alltaf eitthvað nýtt að sjá í Þórbergssetri og búið að vera gestkvæmt í vetur. Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps kom í heimsókn á laugardaginn 24. mars , naut veitinga og fór um sýningar og fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið að Hala á þessum vetri. Norðurljósin, náttúran í vetrarríki og einstök menning dregur nú æ fleiri ferðamenn til Íslands yfir veturinn og er það afar ánægjuleg þróun. Eitt af meginmarkmiðum með starfsemi Þórbergsseturs er að hafa opið allt árið, leggja sig fram í þjónustu við ferðamenn á lágönn, og jafnframt að stuðla að framþróun menningarferðaþjónustu á Íslandi.
 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti