Laugardagurinn 25. maí 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Á slóðum bókanna
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
fimmtudagur, 12 maí 2011

Málþing á vegum Þórbergsseturs, Háskólseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum verður haldið í Þórbergssetri dagana 28. - 29 maí næstkomandi. Markmið með málþinginu er að vekja athygli á því hvernig hægt er að gera bókmenntaarfinn og nútímabókmenntir að aflvaka nýrra tækifæra í ferðaþjónustu á Íslandi. Fara á fram samræða á milli forystumanna í samtökum ferðaþjónustu,  rekstraraðila í ferðaþjónustu, rithöfunda, leikara og bókmenntafræðinga auk þess sem að þýskir blaðamenn koma í heimsókn, en þeir eru á Íslandi á vegum Sagenhaftes verkefnisins og eru að kynna Ísland vegna bókamessunnar í Frankfurt í október 2011. Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma í vorið í Suðursveit eina helgi og taka þátt í skemmtilegri dagskrá þar sem  persónur sagnanna  birtast ljóslifandi og náttúruskoðun fær á sig skáldsagnakenndan blæ.

Dagskrá:

 

Laugardaginn 28. maí .
16:00 Málþingið sett
16:15 Ávarp;  Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
16:30 Bókmenntir á aðventu: Skúli Björn Gunnarsson Gunnarsstofnun
17: 00 Hallveig og konurnar á Sturlungaöld: Margrét Ákadóttir leikkona
17:30 Umræður,
18:00 Kvöldverður
19:30 Dagskrá á ensku með þátttöku þýskra blaðamanna: Pétur Gunnarsson kynnir Þórberg Þórðarson, Þórbergssetur og sín verk. Umræður og kvöldstund með áhugafólki um bókmenntir og ferðaþjónustu. Sunnudaginn 29. maí
9:00    Morgunhressing og morgunganga meðal steinanna, sem tala.
10:15 Á slóðum Guðríðar og Hallgríms: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur
10:45 Orðsins list: Saga og sögur; Guðrún Helgadóttir Háskólanum á Hólum
11:15 Veruleiki  skáldskaparins;.  Soffía Auður Birgisdóttir Háskólasetur Hornafjarðar
11:45 Að búa í heimi skáldævisögunnar; Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetur
12:10 Umræður
12:40 Hádegisverður og málþingslok
Málþingsgjald er  kr 6000, innifalið kaffi, kvöldverður og hádegisverður
Bókanir á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
Gisting í boði á Hala Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og á Gerði Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
ALLIR VELKOMNIR
 
 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti