Miðvikudagurinn 19. júní 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Heimsókn að Bessastöðum
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
miðvikudagur, 16 febrúar 2011
img_1542Eyrarrósin 2011, viðurkenning fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, kom í hlut Sumartónleika í Skálholtskirkju og veittu aðstandendur þeirra viðurkenningunni móttöku sunnudaginn 13. febrúar klukkan 14, við athöfn á Bessastöðum. Þórbergssetur var einnig tilnefnt til verðlaunanna svo og Hreindýraland á Egilsstöðum. Athöfnin á Bessastöðum var látlaus og skemmtileg. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin.  Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar flutti dúettinn Hundur í óskilum nokkur lög við góðar undirtektir gesta. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík fluttu ávörp. Þórbergssetur hlaut í verðlaun krónur 250.000 og 5 flugferðir með Flugfélagi 'islands innanlands. Sjá nánar http://www.listahatid.is/um-listahatid-i-reykjavik/frettir/nr/1606
 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti