Mánudagurinn 6. september 2010
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Helgarferð að Hala Suðursveit
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
sunnudagur, 17 janúar 2010

Í boði er helgardvöl á Hala í Suðursveit á góðum kjörum. Ferðin er ætluð fyrir stofnanir og starfsmannahópa sem langar að skoða sig um á landsbyggðinni eða fara í stutta heimsókn  á milli landshluta.  Hægt er að gera sértilboð eða breyta dagskrá eftir óskum. Frekari upplýsingar í síma 867 2900 eða á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  Dagskrá er eftirfarandi: 

 



Föstudagskvöld: Koma sér fyrir í gistingu, kvöldmatur úr sveitinni, hangikjöt, svið, slátur, heimabakað flatbrauð og rúgbrauð, sveskjugrautur með rjóma, kynning á Suðursveit og Þórbergssetri

Laugardagur:  Morgunverður, erindi saga Suðausturlands, sögusýning, hádegisverður, kjötsúpa og rúgbrauð með kæfu, vettvangsferð um Suðursveit, kl 16:00 frjáls tími, hátíðarkvöldverður með mat frá Hala, bleikja og lambakjöt, ýmsir réttir, kvöldvaka, upplestur, söngur, strand, spjall um landsins gagn og nauðsynjar.

Sunnudagur Morgunverður, sagnalist, sögur og söngur Steinþórs á Hala, söguferð um nágrenni Hala,
hádegisverður, súpa og salat, formlegri dagskrá lokið kl 13:00

Verð á helgarpakka matur, gisting, leiðsögn, sýning 16.500 kr. á mann.
Á Hala er gisting fyrir 42 í eins og tveggja manna herbergjum

 

 
Tilvitnun
Stjörnur
Alveg er það óskiljanlegt hvað stjörnurnar geta verið langt í burtu og hvað þær geta verið stórar. Sumar eru svo langt frá okkur, að ljósið er hundrað þúsundir ára á leiðinni frá þeim niður til okkar. Ljósið - hundrað þúsundir ára ! Hver skilur þennan leyndardóm?
Og það er til svo stór stjarna, að ef hún væri þar, sem jörðin er, þá næði hún alla leið út að sólinni. Hún heitir Betelgeuze. Hvílíkur óskapa líkami! Hann minnir á það, þegar ég stóð lítið barn í fyrsta sinn hjá hesti. Hesturinn hafði ekki neina lögun, heldur var hann eitthvað óendanlega stórt. Skyldi geimurinn vera óendanlegur?
Lesa meira...
 
Dagbók
Póstlisti