Mánudagurinn 6. september 2010
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Um áramót 2010
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
þriðjudagur, 12 janúar 2010
Veðurfar hefur verið með eindæmum gott yfir jól og áramót hér í Suðursveit. Árið 2009 var gjöfult hér, fjölmargir ferðamenn af ótal þjóðernum komu á Hala og í Þórbergssetur og öflugt menningarstarf var innan Þórbergsseturs með þáttöku fjölmargra gesta, erlendra sem innlendra. Stærsti ávinningur ársins 2009 er þó sá að Þórbergssetur er nú komið inn á föst fjárlög íslenska ríkisins og þar með viðurkennt sem eitt af rithöfundasetrum Íslands. Þar með er margra ára baráttumál í höfn og það verður ánægjulegt að geta nú haldið áfram að byggja upp öflugt menningarstarf í Þórbergssetri. Við lítum því bjartsýn fram á veginn  íbúar í Suðursveit og vonum að þær þrengingar sem íslensk þjóð hefur þurft að ganga í gegnum á síðastliðnu ári efli okkur og styrki í að nýta sjálfsbjargarviðleitnina til stærri átaka í framtíðinni.
 
Tilvitnun
Stjörnur
Alveg er það óskiljanlegt hvað stjörnurnar geta verið langt í burtu og hvað þær geta verið stórar. Sumar eru svo langt frá okkur, að ljósið er hundrað þúsundir ára á leiðinni frá þeim niður til okkar. Ljósið - hundrað þúsundir ára ! Hver skilur þennan leyndardóm?
Og það er til svo stór stjarna, að ef hún væri þar, sem jörðin er, þá næði hún alla leið út að sólinni. Hún heitir Betelgeuze. Hvílíkur óskapa líkami! Hann minnir á það, þegar ég stóð lítið barn í fyrsta sinn hjá hesti. Hesturinn hafði ekki neina lögun, heldur var hann eitthvað óendanlega stórt. Skyldi geimurinn vera óendanlegur?
Lesa meira...
 
Dagbók
Póstlisti