Miðvikudagurinn 19. júní 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Stjörnur
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
mánudagur, 19 október 2009
Alveg er það óskiljanlegt hvað stjörnurnar geta verið langt í burtu og hvað þær geta verið stórar. Sumar eru svo langt frá okkur, að ljósið er hundrað þúsundir ára á leiðinni frá þeim niður til okkar. Ljósið - hundrað þúsundir ára ! Hver skilur þennan leyndardóm?
Og það er til svo stór stjarna, að ef hún væri þar, sem jörðin er, þá næði hún alla leið út að sólinni. Hún heitir Betelgeuze. Hvílíkur óskapa líkami! Hann minnir á það, þegar ég stóð lítið barn í fyrsta sinn hjá hesti. Hesturinn hafði ekki neina lögun, heldur var hann eitthvað óendanlega stórt. Skyldi geimurinn vera óendanlegur? Það er ákaflega göfgandi fyrir andann að hugsa um stjörnugeiminn. Það lyftir huganum svo hátt yfir smámuni hversdagslífsins og víkkar svo mikið þennan þrönga sjóndeildarhring jarðheimsins og gerir mann djúpan, víðfeðman og siðferðilegan.
 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti