Mánudagurinn 6. september 2010
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Veðurblíða
Skrifað af Þorbjörg Arnórsdóttir   
þriðjudagur, 12 maí 2009
Veðurfar hefur verið hagstætt á þessu vori. Sauðburður er langt kominn á Breiðabólsstaðarbæjunum og hefur gengið vel. Hagstætt veðurfar gerir það að verkum að hægt er að setja ærnar út á tún. Gróður er kominn vel á veg og beit í túnum.
 
Tilvitnun
Stjörnur
Alveg er það óskiljanlegt hvað stjörnurnar geta verið langt í burtu og hvað þær geta verið stórar. Sumar eru svo langt frá okkur, að ljósið er hundrað þúsundir ára á leiðinni frá þeim niður til okkar. Ljósið - hundrað þúsundir ára ! Hver skilur þennan leyndardóm?
Og það er til svo stór stjarna, að ef hún væri þar, sem jörðin er, þá næði hún alla leið út að sólinni. Hún heitir Betelgeuze. Hvílíkur óskapa líkami! Hann minnir á það, þegar ég stóð lítið barn í fyrsta sinn hjá hesti. Hesturinn hafði ekki neina lögun, heldur var hann eitthvað óendanlega stórt. Skyldi geimurinn vera óendanlegur?
Lesa meira...
 
Dagbók
Póstlisti