Miðvikudagurinn 22. maí 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Alþýðufróðleikur
Skrifað af Steinþór Þórðarson Hala   
laugardagur, 23 febrúar 2008
Þegar Hallfreður Örn Eiríksson þjóðfræðingur spyr Steinþór á Hala á sjöunda áratug síðustu aldar, þá aldraðan bónda hvort að honum finnist þær sögur sem hann er að segja unga fólkinu í dag hafi einhverju hlutverki að gegna svarar hann með þessum orðum.

,, Ég veit það nú ekki, þetta er nú meira sagt til að halda við og sýna alþýðufróðleik eins og hann var. Það er nú svona með okkur gömlu mennina að við teljum það hafa mikið gildi að alþýðufróðleikurinn fái að lifa áfram með þjóð okkar og ef að engar sögur eru sem binda þátíð og nútíð saman, þá er alltaf hætta á ferðum með þjóðmenningu okkar og að eitthvað glatist."

 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti