Föstudagurinn 24. maí 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur

| Menningarverðmætin | Sjálfseignarstofnun | Dvöl á Hala | Starfsmenn | Samstarfsaðilar |

Samstarfsaðilar
Þórbergssetur hefur gert samstarfssamning við allmargar mennta- og menningarstofnanir þar sem kveðið er á um stuðning og þátttöku stofnananna í uppbyggingu Þórbergsseturs.
Þórbergssetur og samstarfsaðilar ætla að taka höndum saman um kynningu á Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi, ævi hans og verkum. Einnig ætla samstarfsaðilar að veita sérfræðiráðgjöf og aðgang að heimildum og gögnum um Þórberg eftir því sem heimildir viðkomandi stofnana leyfa. Samstarfsstofnanir ætla að leggja eftir atvikum fram efni á málþing um Þórberg og Þórbergsvefinn og benda námsfólki og einstaklingum á þann möguleika að beina rannsóknum að Suðursveit og Austur Skaftafellssýslu og láta Þórbergssetur njóta góðs af þeim. Þórbergssetur mun síðan leitast við að skapa aðstöðu fyrir fræðimenn og nemendur til að stunda rannsóknir í Suðursveit, setja upp sögusýningu um meistarann og stuðla að kynningu á verkum hans.

Listi yfir samstarfsaðila

Heimspekideild Háskóla Íslands
Nýja Garði við Hringbraut. Sími: 525 4400
Bergljót S. Kristjánsdóttir dósent Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Íslenska esperantosambandið
Islanda Esperanto-Asocio (IEA)
Skólavörðustíg 6b
101 Reykjavík
Sími / telefono: 5527288
Kristján Eiríksson forseti / prezidanto Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Arngrímsgötu 3. Sími: 525 5600
Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Náttúrufræðistofnun Íslands
Hlemmi 3. Sími: 590 050
Jón Gunnar Ottósson forstjóri Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Orðabók Háskólans
Neshaga 16. Sími: 525 4430
Guðrún Kvaran forstöðumaður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Rithöfundasamband Íslands
Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8. Sími: 568 3190
Ragnheiður Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu. Sími: 525 4010
Vésteinn Ólason forstöðumaður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Þjóðminjasafn Íslands
Lyngási 7, Garðabæ. Sími: 530 2200
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Brynhildur Ingvarsdóttir sviðsstjóri miðlunarsviðs Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Þjóðskjalasafn Íslands
Laugavegi 162. Sími: 562 3393
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bjarni Þórðarson fjármálastjóri Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Örnefnastofnun Íslands
Lyngási 7, Garðabæ. Sími: 530 2250
Svavar Sigmundsson forstöðumaður Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti