Fimmtudagurinn 23. maí 2013
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur

| Menningarverðmætin | Sjálfseignarstofnun | Dvöl á Hala | Starfsmenn | Samstarfsaðilar |

Dvöl á Hala

gisting_myndirÁ Hala er nú hægt að panta gistingu í sérhúsnæði. Um er að ræða 6 herbergi með sameiginlegu baði í sérhúsnæði og svo 9 herbergi með baði í nýbyggðu rúmgóðu gistiheimili. Þar eru einnig 3 herbergi með sameiginlegu baði, setustofa og eldhús til afnota fyrir gesti. Sjá nánar á www.hali.is Fyrir utan háannatímann þ.e. frá 1. september til 1. júní  er hægt að koma og dvelja á Hala yfir helgi eða í lengri tíma. Á það við um hópa, fjölskyldur, fræðimenn, ýmis námskeið eða skólahópa. Á vegum Þórbergsseturs er hægt að panta sérstaka dagskrá sem hentar hverjum og einum. Sem dæmi má nefna gönguferð að kvöldlagi og stjörnuskoðun ef veður leyfir,  upplestur úr verkum Þórbergs eða efni úr Suðursveit, gönguferðir úti í náttúrunni, ratleiki, að skoða fiskeldi og ála, hátíðarkvöldverð í Þórbergssetri o.fl. Jarðhiti hefur fundist við Hala og hægt er að baða sig í heitum potti (fiskikari) og stunda Möllersæfingar á síðkvöldum. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Þorbjörgu Arnórsdóttur í síma 867 2900 

Upplýsingar um gistingu eru hjá Þorbjörgu Arnórsdóttur Hala sími 478 - 1078 eða 867 - 2900

Netfang Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 
Tilvitnun
Sólin

Í Suðursveit var sólin helgasta handarverk Guðs. Hún var næstum ein persóna Guðdómsins. Fólk bar djúpa lotningu fyrir henni. Ég heyrði það oft tala fallega um hana. Það sagði stundum á morgnana:,, Nú er blessuð sólin komin upp." Og á kvöldin:,, Nú er blessuð sólin sest."Ég sá það stundum standa undir eldhúsgaflinum, þegar það kom á fætur, og krossa sig framan í hana. Það gerði ég líka. Ég vissi ekki af hverju, nema þegar amma mín hafði fengið andarteppukast um nóttina eða skjöldótta kýrin bölvað mikið, þá vissi ég alltaf til hvers ég krossaði mig. Mér fannst krossarnir fullorðna fólksins vera þakkargerð til Guðs fyrir að vera sloppin lífs gegnum myrkur næturinnar. Og ég held það hafi líka verið svolítill ásetningur í því um Guði þóknanlega breytni þann daginn. Það var talsvert um það í Suðursveit að reyna að lifa eftir Guðs vilja. Þess vegna hefur enginn úr Suðursveit komist hátt í heiminum nema aðeins einn maður, og það er meira en öld síðan.
(Í Suðursveit bls 27)

 
Dagbók
Póstlisti