Mánudagurinn 6. september 2010
| Forsíða | Fréttir | Þórbergur | Þórbergssetur | Suðursveit | Málþing | Tilvitnanir | Viðburðir | Um vefinn | Leit |

Guesthouse Hali

Þórbergssetur


Um vefinn

Vefurinn thorbergur.is var opnaður árið 2002 á fæðingardegi Þórbergs Þórðarsonar, 12. mars, og er tileinkaður ævi og störfum hans.
Aðstandendur vefjarins eru Þórbergssetur, Galdur ehf. og Menningarmiðstöð Hornafjarðar.

Markmiðið er að safna saman fjölbreyttu efni um Þórberg Þórðarson og gera aðgengilegt á vefnum.
Vefurinn er ætlaður öllu áhugafólki um Þórberg; fræðimönnum, nemendum allra skólastiga og unnendum íslenskrar tungu.

Thorbergur.is verður alhliða upplýsinga- og fræðsluvefur um Þórberg Þórðarson og hér verður að finna upplýsingar um ævi og störf Þórbergs, ritgerðir og greinar um verk hans. Ábendingar um efni eru vel þegnar og má senda á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og einnig er hægt að skrá sig á póstlistann og fá fregnir um nýtt efni á vefnum.

 
Tilvitnun
Stjörnur
Alveg er það óskiljanlegt hvað stjörnurnar geta verið langt í burtu og hvað þær geta verið stórar. Sumar eru svo langt frá okkur, að ljósið er hundrað þúsundir ára á leiðinni frá þeim niður til okkar. Ljósið - hundrað þúsundir ára ! Hver skilur þennan leyndardóm?
Og það er til svo stór stjarna, að ef hún væri þar, sem jörðin er, þá næði hún alla leið út að sólinni. Hún heitir Betelgeuze. Hvílíkur óskapa líkami! Hann minnir á það, þegar ég stóð lítið barn í fyrsta sinn hjá hesti. Hesturinn hafði ekki neina lögun, heldur var hann eitthvað óendanlega stórt. Skyldi geimurinn vera óendanlegur?
Lesa meira...
 
Dagbók
Póstlisti